31.01.16 - 12:25
Arnar Geir Halldórsson
Jemerson til Monaco (Staðfest)

Jemerson skallar boltann

Mynd: Getty Images

Jemerson skallar boltann

Mynd: Getty Images
Franska úrvalsdeildarliðið Monaco hefur fest kaup á brasilíska varnarmanninum Jemerson.
Monaco borgar 10 milljónir evra fyrir þennan 23 ára miðvörð sem kemur til liðsins frá Atletico Mineiro í heimalandinu.
Hann gerir fimm ára samning við Monaco og mun leika í treyju númer fimm.
Jemerson vakti athygli fyrir góða frammistöðu í brasilísku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og var valinn í landsliðshóp Brasilíu fyrir leik gegn Perú í nóvember á síðasta ári en kom ekki við sögu í leiknum.
Monaco situr í 2.sæti frönsku úrvalsdeildarinnar en er þó 21 stigi á eftir toppliði PSG.