Fotbolti.net
31.01.16 - 14:08
Arnar Geir Halldórsson

Kokorin og Zhirkov til Zenit (Staðfest)

Aleksandr Kokorin

Aleksandr Kokorin

Canon

Mynd: Getty Images

Rússneska risaliðið Zenit frá Pétursborg hefur gengið frá samningum við rússnesku landsliðsmennina Aleksandr Kokorin og Yuri Zhirkov.
Báðir koma þeir til Zenit frá Dynamo Moskvu en bæði lið voru í vandræðum á fyrri hluta tímabilsins í Rússlandi þar sem Zenit er í 6.sæti en Dynamo Moskva í 11.sæti.

Kokorin er 24 ára gamall framherji sem hefur verið orðaður við Arsenal í allan vetur en hann hefur skorað 10 mörk í 36 landsleikjum fyrir Rússa.

Yuri Zhirkov er einn af leikreyndustu leikmönnum Rússlands en hann á 67 landsleiki að baki og hefur meðal annars leikið fyrir CSKA Moskvu og Anzhi Makhachkala í heimalandinu og einnig lék hann með Chelsea á sínum tíma.

Báðir eru þeir löglegir með Zenit í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu þar sem liðið mætir Benfica.

Zenit-TV: Zhirkov and Kokorin welcomed to the team! https://t.co/hehGn5nInk #ZenitInPortugal pic.twitter.com/c9aowWW02g

— FC Zenit in English (@fczenit_en) January 31, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.