Fotbolti.net
31.01.16 - 13:41
Arnar Geir Halldórsson

Pizzi tekinn við Síle (Staðfest)

Komnir með nýjan þjálfara

Komnir með nýjan þjálfara

Canon

Mynd: Getty Images

Argentíski Spánverjinn Juan Antonio Pizzi hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Síle.
Pizzi tekur við þessu fimmta besta landsliði heims af Jorge Sampaoli sem sagði starfi sínu lausu á dögunum vegna ágreinings við nýkjörinn forseta knattspyrnusambands Síle, Arturo Salah.

Sampaoli varð ósáttur eftir að fyrrum forsetinn Sergio Jadue sagði af sér í nóvember vegna ásakana um spillingu sem þjálfaranum var sjálfum blandað inn í.

Hinn 47 ára gamli Pizzi hefur þjálfað víða í Ameríku eftir að hann hætti sjálfur að spila en síðast stýrði hann Leon í Mexíkó. Þá var hann einnig knattspyrnustjóri Valencia í nokkra mánuði árið 2014.

Pizzi er fæddur og uppalinn í Argentínu en gerðist spænskur ríkisborgari þegar hann gerði garðinn frægan með Tenerife og Barcelona en hann lék 22 landsleiki fyrir A-landslið Spánar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.