31.01.16 - 18:59
Alexander Freyr Tamimi
Terry yfirgefur Chelsea í sumar (Staðfest)

Terry fer frá Chelsea.

Mynd: Getty Images

Terry fer frá Chelsea.

Mynd: Getty Images
John Terry, fyrirliði Chelsea, mun yfirgefa félagið í sumar eftir samtals 21 ár hjá félaginu. Terry hefur leikið með aðalliði Chelsea frá árinu 1998 að undanskilinni stuttri lánsdvöl hjá Nottingham Forest árið 2000.
Þessum 35 ára gamla miðverði var ekki boðinn nýr samningur á Stamford Bridge og er hann því frjáls ferða sinna í sumar.
Þessum 35 ára gamla miðverði var ekki boðinn nýr samningur á Stamford Bridge og er hann því frjáls ferða sinna í sumar.
Terry hefur fjórum sinnum orðið enskur meistari með Chelsea og auk þess orðið Evrópumeistari og bikarmeistari. Hann hefur sagt að hann vilji ekki spila fyrir annað félag á Englandi og gæti MLS-deildin verið líklegur áfangastaður.
Terry var alger lykilmaður er Chelsea varð Englandsmeistari á síðustu leiktíð eftir að hafa upplifað endurnýjun lífdaga undir stjórn Jose Mourinho.
Terry var alger lykilmaður er Chelsea varð Englandsmeistari á síðustu leiktíð eftir að hafa upplifað endurnýjun lífdaga undir stjórn Jose Mourinho.
