Fotbolti.net
31.01.22 - 19:17
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalska deildin

Albert semur við Genoa (Staðfest)

Albert semur við Genoa (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Albert Guðmundsson er genginn til liðs við Genoa á Ítalíu. Hann kemur frá AZ Alkmaar í Hollandi.
Albert er 24 ára gamall en hann hefur leikið í Hollandi frá árinu 2013 þegar hann gekk til liðs við Herenveen frá KR.

Þaðan fór hann til PSV og síðan til AZ árið 2018 en hann hefur leikið 72 leiki og skorað 14 mörk í efstu deildinni í Hollandi fyrir AZ.

Samningur hans við hollenska liðið var að renna út í sumar og félagið reyndi því að selja hann fyrir lok félagsskipta gluggans. Hann mun spila í treyju númer 11.

„Við erum mjög ánægð að fá ungan leikmann með mikla reynslu eins og Albert. Hann mun hjálpa okkur að bæta okkur," sagði Johannes Spors yfirmaður hjá Genoa.

Genoa er í næst neðsta sæti Serie A og er fimm stigum frá öruggu sæti.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.