Fotbolti.net
31.01.22 - 17:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Bryan Gil til Valencia (Staðfest) - Harry Potter kynning

Bryan Gil til Valencia (Staðfest) - Harry Potter kynning
Canon

Mynd: Valencia

Valencia hefur fengið Bryan Gil að láni frá Tottenham. Félagið tilkynnti um komu Gil með skemmtilegu myndbandi sem má sjá neðst í fréttinni.

Samningurinn gildir til loka tímabilsins en ekkert kaupákvæði fylgir samningnum.

Gil verður 21 árs eftir rúma viku og kom til Tottenham frá Sevilla síðasta sumar. Hann hefur komið við sögu í tuttugu leikjum á tímabilinu en hefur ekki tekist að skora.
Hann vann silfurverðlaun með spænska landsliðinu á Ólympíuleikunum og var einnig hluti af U19 ára landsliði Spánar sem vann EM.

Tottenham keypti hann á ríflega tuttugu milljónir punda frá Sevilla síðasta sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.