Fotbolti.net
31.01.22 - 23:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Cantwell til Bournemouth á láni (Staðfest)

Cantwell til Bournemouth á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Það hefur verið nóg að gera á skrifstofunni hjá Bournemouth í dag. Félagið nældi í Todd Cantwell á láni frá Norwich rétt fyrir lok gluggans.
Hann er fimmti leikmaðurinn sem gengur til liðs við Bournemouth.

Þessi 23 ára gamli enski miðjumaður kom inn í úrvalsdeildina með krafti þegar Norwich komst upp úr Championship fyrir tveimur árum. Hann hefur hinsvegar ekki fundið sig á þessari leiktíð.

Ásamt Cantwell hafa Freddie Woodman, Nat Phillips, Kieffer Moore og Siriki Dembele gengið til liðs við Bournemouth í dag.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.