Fotbolti.net
31.01.22 - 16:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Grindavík fær fyrrum landsliðsmann Norður-Makedóníu (Staðfest)

Grindavík fær fyrrum landsliðsmann Norður-Makedóníu (Staðfest)
Canon

Mynd: Makedónía

Lengjudeildin
Grindavík hefur krækt í Vladimir Dimitrovski. Sá er 33 ára Makedóni sem á að baki fjóra landsleiki fyrir Norður-Makedóníu.

Samningurinn gildir út tímabilið. Á ferlinum hefur hann leikið víða, með félögunum í Belgíu, Króatíu, Tékklandi, Grikkandi og í Aserbaídsjan.
Vladimir er mættur til Íslands og lék með Grindavík í tveimur leikjum í síðustu viku.

„Ég er mjög ánægður með að fá Vladimir til liðs við okkur. Þetta er öflugur og reynslumikill leikmaður sem mun án efa verða mikilvægur leikmaður fyrir Grindavík í sumar."

„Þetta er mikill karakter og leiðtogi. Hann kemur til okkar í góðu formi og ég hlakka til að vinna með honum á leiktíðinni,“
segir Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Grindavíkur.

Grindavík leikur í Lengjudeildinni í sumar. Liðið endaði í sjöunda sæti deildarinnar á síðasta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.