31.01.22 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hallgerður til Gróttu (Staðfest) - Elín Helga framlengir


Mynd: Grótta


Mynd: Grótta

Hallgerður Kristjánsdóttir hefur skrifað undir samning við Gróttu um að leika með liðinu á komandi tímabili. Síðustu tvö árin hefur hún leikið með Tindastóli en hún er uppalin hjá Val.
Hallgerður á að baki tvo leiki með U16 landsliðinu og segir í tilkynningu Gróttu að hún sé mikill liðsstyrkur fyrir liðið. Hún er tvítugur varnarmaður.
Hallgerður á að baki tvo leiki með U16 landsliðinu og segir í tilkynningu Gróttu að hún sé mikill liðsstyrkur fyrir liðið. Hún er tvítugur varnarmaður.
Þá tilkynnti félagið að Elín Helga Guðmundsdóttir væri búin að framlengja samning sinn við félagið.
Hún er sextán ára varnarmaður sem lék með meistaraflokki, 2. flokki og 3. flokki síðasta sumar.
Hún er sextán ára varnarmaður sem lék með meistaraflokki, 2. flokki og 3. flokki síðasta sumar.
