31.01.22 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Juventus kaupir miðvörð úr B-deildinni (Staðfest)

Federico Gatti fer til Juventus

Mynd: Getty Images

Federico Gatti fer til Juventus

Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Juventus hefur fest kaup á ítalska miðverðinum Federico Gatti en hann kemur frá Frosinone. Hann verður á láni hjá B-deildarliðinu út leiktíðina.
Gatti er 23 ára gamall og hefur enga reynslu úr A-deildinni en hann spilaði með Pro Patria, Verbania og Pavarolo áður en hann fór til Frosinone fyrir þessa leiktíð.
Hann hefur spilað 19 leiki, skorað 3 mörk og lagt upp 1 í B-deildinni á þessu tímabili en frammistaða hans varð til þess að Juventus, eitt stærsta félag Evrópu, ákvað að festa kaup á honum.
Kaupverðið er 10 milljónir evra og gengur hann til liðs við félagið í sumar en hann verður á láni hjá Frosinone út þetta tímabil.
Mörg félög í Seríu A höfðu áhuga á því að fá hann og lagði Inter meðal annars fram 7 milljón evra tilboð en Juventus hafði vinninginn.