Fotbolti.net
31.01.22 - 13:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Lampard ráðinn stjóri Everton (Staðfest) - „Mikill heiður"

Lampard ráðinn stjóri Everton (Staðfest) - „Mikill heiður"
Canon

Mynd: Everton

Everton tilkynnti rétt í þessu að Frank Lampard væri orðinn stjóri félagsins. Lampard skrifar undir tveggja og hálfs árs samning við félagið. Fyrsti leikur hans verður gegn Brentford í enska bikarnum um næstu helgi.

Lampard tekur við af Duncan Ferguson sem hefur verið bráðabirgðastjóri frá því að Rafa Benítez var látinn fara eftir tap gegn Norwich fyrr í mánuðinum. Lampard var síðast stjóri Chelsea en var látinn fara fyrir rúmu ári síðan.
Joe Edwards verður aðstoðarmaður Lampard, Paul Clement verður í þjálfarateyminu sem og Chris Jones.

Duncan Ferguson og Alan Kelly munu þá einnig halda áfram að starfa fyrir félagið, verða í teyminu með Lampard.

Fyrir helgi stóðu þrjú nöfn eftir í baráttunni um starfið hjá Everton. Það voru þeir Vitor Perreira, Frank Lampard og Duncan Ferguson. Fyrsta æfing undir stjórn Lampard verður núna seinni partinn í dag.

„Þú finnur fyrir ástríðunni sem stuðningsmenn hafa fyrir félaginu. Sú ástríða verður mikilvæg í okkar vegferð, við þurfum á henni að halda. Stuðningsmenn vilja sjá baráttu og löngun og það verður alltaf að vera í fyrirúmi. Það er mikill heiður að fá þetta tækifæri. Ég er hungraður að hefja störf," sagði Lampard.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.