Fotbolti.net
31.01.22 - 17:31
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Lyon kaupir Faivre frá Brest (Staðfest)

Lyon kaupir Faivre frá Brest (Staðfest)
Canon

Mynd: Lyon

Lyon hefur verið að víla og díla á gluggadegi og krækti í tvo öfluga miðjumenn í dag. Fyrst kom Tanguy Ndombele að láni frá Tottenham og þá keypti félagið Romain Faivre frá Brest.

Faivre er 23 ára örvættur miðjumaður sem steig sín fyrstu spor hjá Mónakó áður en hann var fenginn til Brest árið 2020. Í 59 deildarleikjum hefur hann skorað fjórtán mörk, mark í ríflega fjórða hverjum deildarleik.
Faivre er talinn kosta Lyon á bilinu 12,5-15 milljónir punda. Ásamt því að geta spilað á miðjunni getur hann einnig spilað á kantinum.

Þeir Ndombele og Faivre koma í kjölfarið á sölu félagsins á Bruno Guimaraes til Newcastle í gær.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.