Fotbolti.net
31.01.22 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Martin Caceres til Levante (Staðfest)

Martin Caceres er farinn til Spánar

Martin Caceres er farinn til Spánar

Canon

Mynd: EPA

Úrúgvæski miðvörðurinn Martin Caceres mun spila með spænska félaginu Levante út þessa leiktíð en félagið staðfesti komu hans í gær.
Caceres er 34 ára gamall og hefur spilað með félögum á borð við Barcelona, Juventus, Fiorentina og Southampton.

Hann kom til Cagliari frá Fiorentina fyrir þessa leiktíð en ákvað að róa á önnur mið í þessum glugga.

Caceres var orðaður við Cadiz á Spáni á föstudag en tveimur dögum síðar var hann kynntur hjá Levante.

Samningur hans er út þessa leiktíð með möguleika á að framlengja um annað ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.