Fotbolti.net
31.01.22 - 18:19
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Targett til Newcastle á láni (Staðfest)

Targett til Newcastle á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Matt Targett er genginn til liðs við Newcastle frá Aston Villa á láni út leiktíðina.
Þessi 26 ára gamli vinstri bakvörður er fjórði leikmaðurinn sem kemur til Newcastle í janúar á eftir Kieran Trippier, Chris Wood og Bruno Guimaraes.

Hann hefur mikla reynslu úr ensku úrvalsdeildinni en hann hefur leikið yfir 150 leiki, bæði fyrir Aston Villa og Southampton.

„Ég er gríðarlega ánægður með að vera kominn hingað. Ég get ekki beðið eftir því að byrja og hitta stuðningsmennina og vonandi náum við góðum árangri á tímabilinu;" sagði Targett við undirskriftina.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.