31.03.13 - 20:31
Magnús Már Einarsson
Paolo Di Canio tekinn við Sunderland (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Paolo Di Canio hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Sunderland en hann hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við félagið.
Di Canio tekur við starfinu af Martin O\'Neill sem var rekinn í gærkvöldi í kjölfarið á 1-0 tapi gegn Manchester United.

Di Canio hætti sjálfur hjá Swindon fyrr á tímabilinu eftir að hafa komið liðinu upp úr ensku D-deildinni í fyrra og beint í toppbaráttuna í C-deildinni.
Þessi 44 ára gamli Ítali spilaði á sínum tíma með Sheffield Wednesday, West Ham og Charlton á Englandi en hann lagði skóna á hilluna árið 2008.
Sunderland er sem stendur í 16. sæti í ensku úrvalsdeildinni, einu stigi frá fallsvæðinu.
Fyrsti leikur liðsins undir stjórn Di Canio verður gegn Chelsea um næstu helgi.