31.03.14 - 11:27
Magnús Már Einarsson
Heiðar Geir til Ham/Kam á láni (Staðfest)

Heiðar Geir fer til Noregs.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heiðar Geir fer til Noregs.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Norska B-deildarliðið Ham/Kam hefur fengið Heiðar Geir Júlíusson til liðs við sig á láni út þetta ár.
,,Heiðar Geir sem samdi við Þrótt á dögunum vildi fá að reyna fyrir sér í norsku 1.deildinni þegar sá möguleiki opnaðist en um frábært tækifæri er að ræða fyrir pilt,\" segir í fréttatilkynningu frá Þrótti.
,,Það er von Þróttar að það gangi vel hjá Heiðari ytra og að hann komi enn sterkari leikmaður tilbaka.\"
Hinn 26 ára gamli Heiðar Geir lék með Fylki fyrri hluta síðasta tímabils áður en hann fór til Svíþjóðar. Hann samdi við Þrótt fyrr á þessu ári en mun nú leika í Noregi á komandi tímabili.
Ham/Kam stefnir á að láta Heiðar Geir spila sem hægri bakvörður en hann var á reynslu hjá liðinu í síðustu viku.
Heiðar Geir hóf sinn feril hjá Fram en fór svo til Svíþjóðar þar sem hann lék í nokkur ár.