Fotbolti.net
31.03.16 - 14:05
Elvar Geir Magnússon

Rolf Toft að ganga í raðir Vals - Ásgeir Þór mættur

Toft í leik með Víkingi.

Toft í leik með Víkingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Danski sóknarmaðurinn Rolf Toft hefur komist að samkomulagi við bikarmeistara Vals og er að ganga í raðir félagsins samkvæmt áreiðanlegum heimildum Fótbolta.net.
Rolf spilaði með Stjörnunni síðari hluta sumars 2014 og með Víkingi Reykjavík í fyrra. Hinn 23 ára gamli Rolf skoraði sex mörk í ellefu leikjum þegar Stjarnan varð Íslandsmeistari 2014. Í fyrra kom hann við sögu í öllum leikjum Víkings í Pepsi-deildinni og skoraði fjögur mörk.

Hann hefur undanfarna daga æft með Valsmönnum og líklegt að félagið staðfesti hann fyrir eða um helgina.

Hann verður þá þriðji danski leikmaðurinn í herbúðum Vals, fyrir eru varnarmaðurinn Rasmus Christiansen sem kom frá KR og sóknarmaðurinn Nikolaj Hansen sem kom frá FC Vestsjælland.

Ásgeir Þór í Val (Staðfest)
Þá hefur markvörðurinn Ásgeir Þór Magnússon gengið aftur í raðir Vals en hann kemur í stað Antons Ara Einarssonar sem gekk í raðir Grindavíkur. Anton Ari var varamarkvörður fyrir Ingvar Kale í fyrra.

Ásgeir lék sjö leiki með Val í Pepsi-deildinni 2012-13 en hann hefur verið í læknanámi í Slóvakíu síðustu ár.

Valsmenn höfnuðu í fimmta sæti Pepsi-deildarinnar í fyrra ásamt því að landa bikarmeistaratitlinum. Liðið mætir Stjörnunni í Lengjubikarnum klukkan 18:00 á Samsung-vellinum.

Valur:

Komnir:
Guðjón Pétur Lýðsson frá Breiðabliki
Nikolaj Hansen frá FC Vestsjælland
Rasmus Christiansen frá KR
Sindri Björnsson frá Leikni R. (Á láni)
Ásgeir Þór Magnússon frá Þrótti Vogum

Farnir:
Emil Atlason (Var á láni)
Hilmar Þór Hilmarsson í Fram
Iain Williamson í Víking R.
Mathias Schlie til Hobro (Var á láni)
Patrick Pedersen í Viking
Thomas Christensen til Lyngby
Anton Ari Einarsson í lán til Grindavíkur
Markvörðurinn Ásgeir Þór Magnússon.

Markvörðurinn Ásgeir Þór Magnússon.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.