Fotbolti.net
31.03.16 - 14:18
Elvar Geir Magnússon

Rolf Toft gerði eins árs samning við Val (Staðfest)

Toft með skælbrosandi Valsmönnum.

Toft með skælbrosandi Valsmönnum.

Canon

Mynd: Heimasíða Vals

Valsmenn hafa sent frá sér staðfestingu á því að danski sóknarmaðurinn Rolf Toft sé genginn í raðir félagsins. Hann stóðst læknisskoðun og skrifaði undir eins árs samning.
„Rolf er góður knattspyrnumaður og mun án efa styrkja Valsliðið mikið í baráttu efstu liða Pepsideildarinnar á komandi tímabili auk þátttöku liðsins í Evrópukeppninni. Knattpyrnudeild Vals lýsir yfir ánægju með samkomulagið við Rolf Toft og býður hann velkominn í félagið,\" segir á heimasíðu Vals.

Í fyrra lék hann með Víkingi í Pepsi-deildinni þar sem hann spilaði alla leiki liðsins og skoraði fjögur mörk.

Hann er þriðji danski leikmaðurinn í herbúðum Vals, fyrir eru varnarmaðurinn Rasmus Christiansen sem kom frá KR og sóknarmaðurinn Nikolaj Hansen sem kom frá FC Vestsjælland.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.