31.03.16 - 13:00
Magnús Már Einarsson
Tveir Frakkar í KF (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Knattspyrnufélag Fjallabyggðar hefur fengið tvo franska leikmenn í sínar raðir fyrir átökin í 2. deildinni í sumar.
Zady Moise Gnenegbe er miðvörður sem er fæddur árið 1990. Hann spilaði síðast á Möltu en áður lék hann í neðri deildunum í Frakklandi.
Mosie kom til KA á reynslu í janúar en BÍ/Bolungarvík var einnig með hann til skoðunar á dögunum.
André Malonga er hinn franski leikmaðurinn sem KF hefur krækt í en hann er tvítugur framherji sem kemur frá varaliði Lyon.
Tryggvi Þór Logason er einnig kominn til KF frá Þór en hann var fyrirliði 2. flokks Þórs í fyrra.