31.03.16 - 06:00
Arnar Geir Halldórsson
Viktor Daði í Einherja (Staðfest)

Viktor Daði Sævaldsson

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Dalvíkingurinn Viktor Daði Sævaldsson er genginn til liðs við 3.deildarlið Einherja frá Vopnafirði.
Viktor Daði er á nítjánda aldursári en hann var markahæsti leikmaður Dalvíkur/Reynis þegar liðið kolféll úr 2.deildinni síðasta sumar.
Hann skoraði þá fimm mörk í 21 leik en alls hefur hann spilað 47 leiki fyrir Dalvík/Reyni í deild og bikar.
Einherji lenti í fjórða sæti 3.deildar á síðustu leiktíð en eftir tímabilið urðu þjálfarabreytingar og tók Eyjamaðurinn Yngvi Magnús Borgþórsson við liðinu af Víglundi Páli Einarssyni sem tók við 1.deildarliði Fjarðabyggðar.