31.03.17 - 13:12
Magnús Már Einarsson
Tobias Thomsen í KR (Staðfest)

KR-ingar fá liðsstyrk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR-ingar fá liðsstyrk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR hefur fengið danska sóknarmanninn Tobias Thomsen til liðs við sig. Tobias kemur frá AB í næstefstu deild í Danmörku en hann hefur á ferli sínum einnig leikið með Næstved, Nyköbing FC og HB Köge.
Hinn 24 ára gamli Tobias hann hefur á ferli sínum leikið 128 leiki og skorað 55 mörk.

„Það er mikið gleðiefni að Tobias Thomsen leikmaður AB í Danmörku er gengin til liðs við mfl.ka í Knattspyrnu. Hann er duglegur, vinnusamur og sterkur framherji,\" segir á heimasíðu KR.
KR missti dönsku framherjana Jeppe Hansen og Morten Beck Andersen eftir síðasta tímabil og Vesturbæingar hafa verið í leit að manni til að fylla það skarð.
Með komu Tobias er ljóst að fjórir Danir verða í leikmannahópi KR í sumar en fyrir hjá félaginu eru þeir Kennie Chopart, Morten Beck og Michael Præst.
„Ég hlakka mikið til að takast á við þessa áskorunm með KR. eftir að hafa rætt við KR þá get ég sagt að metnaður félagins og metnaður minn passa fullkomlega saman,\" sagði Tobias.
„Ég hef mjög góða tilfinningu fyrir því hvað félagið stendur fyrir og ég get ekki beðið eftir að hitta liðsfélaga mína og byrja.\"
Tobias kemur til Íslands á mánudaginn og gæti því leikið sinn fyrsta leik með KR í 8-liða úrslitum Lengjubikarsins sunnudaginn 9. apríl ef Vesturbæingar fara áfram. Það ræðst á morgun þegar KR mætir Leikni R.
Komnir:
Arnór Sveinn Aðalsteinsson frá Breiðabliki
Garðar Jóhannson frá Fylki
Robert Sandnes frá Noregi
Tobias Thomsen frá AB
Farnir:
Denis Fazlagic til FC Fredericia
Hólmbert Aron Friðjónsson í Stjörnuna
Jeppe Hansen í Keflavík
Morten Beck Andersen til FC Fredericia