31.03.17 - 10:05
Magnús Már Einarsson
Túfa framlengir við KA (Staðfest)

Túfa stýrði KA upp í Pepsi-deildina í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Srdjan Tufegdzic, þjálfari KA, framlengdi í gær samning sinn við félagið um tvö ár.
Túfa stýrð KA til sigurs í inkasso-deildinni í fyrra og mun stýra liðinu í Pepsi-deildinni í sumar.
Túfa tók við þjálfun KA af Bjarna Jóhannssyni um mánaðamótin júlí/ágúst sumarið 2015.
„Samningur Túfa við KA gildir í tvö ár til viðbótar og er þetta gríðarlegt fagnaðarefni fyrir KA-menn enda Túfa vinsæll og virtur innan félagsins,\" segir á heimasíðu KA.
„Túfa hefur lengi verið við þjálfun hjá KA en hann byrjaði að þjálfa yngri flokka meðan hann var ennþá leikmaður. Hann varð síðan aðstoðarþjálfari þegar Bjarni Jóhannsson stýrði liðinu. Túfa þjálfar ennþá 7. flokk karla ásamt meistaraflokknum og eru KA-menn mjög ánægðir með það.\"