Fotbolti.net
31.03.17 - 17:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Valdimar lánaður í Leikni F. í þriðja skiptið (Staðfest)

Valdimar Ingi mun spila aftur með Leikni F. á næsta tímabili.

Valdimar Ingi mun spila aftur með Leikni F. á næsta tímabili.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Leiknir Fáskrúðsfirði heldur áfram að styrkja sig fyrir sumarið í Inkasso-deildinni. Valdimar Ingi Jónsson er kominn til liðsins á láni frá Víkingi Reykjavík.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Valdimar er lánaður til Leiknis, en hann hefur spilað þar síðustu þrjú tímabil. Þetta verður því hans fjórða tímabil í Fáskrúðsfirði.
Valdimar, sem er fæddur árið 1998, hefur leikið með Leikni í 3., 2 og Inkasso-deildinni, en hann á 54 leiki í meistaraflokki með liðinu. Í þeim hefur hann skorað átta mörk.

Hann lék 21 leik í Inkasso-deildinni í fyrra og skoraði tvö mörk þegar Leikismenn björguðu sér á ævintýralegan hátt í lokaumferðinni.

Hann er kominn með leikheimild og gæti spilað gegn Breiðabliki í Lengjubikarnum í kvöld.

Komnir:
Carlos Carrasco Rodriguez frá Spáni
Javier Angel Del Cueto frá Spáni
Kristinn Justiniano Snjólfsson frá Sindra
Robert Winogrodzki frá Þýskalandi
Sigurður Kristján Friðriksson frá Fram
Sverrir Bartolozzi frá Stjörnunni (Á láni)
Valdimar Ingi Jónsson í Víking R. (Á láni)

Farnir:
Adrian Murcia til Spánar
Andres Salas Trenas til Spánar
Anto Pejic til Króatíu
Antonio Calzado Arevalo til Spánar
Dagur Már Óskarsson í Magna
Garðar Logi Ólafsson í Víking R.
Ignacio Poveda Gaona til Spánar
Jose Omar Rocamora til Spánar
Kristófer Páll Viðarsson í KA
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.