Fotbolti.net
31.03.17 - 17:00
Elvar Geir Magnússon

Víðir Þorvarðar í Þrótt (Staðfest)

Víðir í leik með Fylkismönnum.

Víðir í leik með Fylkismönnum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Eyjamaðurinn Víðir Þorvarðarson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Þrótt Reykjavík en hann kemur frá Fylki.
Víðir er alinn upp í ÍBV og spilaði þar í nokkur ár, en brá sér jafnframt í Stjörnuna í millitíðinni. Hann er jafnvígur úti í kanti sem á miðjunni og spilaði sextán leiki með Fylki síðastliðið sumar þar sem hann skoraði fjögur mörk. Þrátt fyrir ungan aldur á hinn 24 ára Víðir að baki 8 ára feril í meistaraflokki og er þar skrifaður fyrir 133 leikjum og 26 mörkum.

„Það er alltaf gaman að fá til okkar bráðunga reynslubolta. Víðir kemur til Þróttar klyfjaður reynslu frá spilamennsku sinni með ÍBV, Stjörnunni og Fylki. Hann er kvikur, nettur, skapandi og skruggufljótur. Þetta er skeinuhættur leikmaður að okkar skapi og hinir frábæru Köttarar eiga eftir að elska kappann. Hann smellpassar við hjartað í Reykjavík,“ segir Ótthar Sólberg Edvardsson, framkvæmdastjóri Þróttar, við heimasíðu félagsins.

„Víðir mætir til leiks með mikil gæði í farteskinu og við vorum sérstaklega ánægðir með hversu mikla löngun hann sýndi til að spila með Þrótti. Það verður spennandi að sjá Víði sprikla í Laugardalnum. Hann er litríkur leikmaður og skemmtilegur á velli. Stórhættulegur í návígjum og með tækni og hæfileika, sem getur splundrað vörnum andstæðinga. Eins og flestar aðrar viðbætur Þróttar á undirbúningstímabilinu kemur nú til okkar þrautreyndur leikmaður úr efstu deild og það er mikilvægt atriði. Víðir er lítilsháttar á eftir öðrum í hópnum hvað snertir leikform, því hann hefur lítið spilað að undanförnu, en hann er svo vinnusamur og metnaðarfullur að hann verður vafalaust kominn í toppform í maí,“ segir Gregg Oliver Ryder, þjálfari Þróttar.

Fram kemur í tilkynningu frá Þrótti að Víðir sé eitt af síðustu púslunum í leikmannahóp Þróttar fyrir sumarið í Inkasso-deildinni, en til liðsins á undirbúningstímabilinu eru komnir Birkir Þór Guðmundsson frá Aftureldingu, Daði Bergsson frá Val, Grétar Sigfinnur Sigurðarson frá Stjörnunni, Sveinbjörn Jónasson frá KH og Viktor Jónsson frá Víkingi Reykjavík.

Heimild: Heimasíða Þróttar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.