Fotbolti.net
31.03.22 - 20:00
Ívan Guðjón Baldursson

Bruno Fernandes búinn að skrifa undir til 2027

Bruno Fernandes búinn að skrifa undir til 2027
Canon

Mynd: Getty Images

Fabrizio Romano er búinn að setja sinn eigin (Staðfest) stimpil á nýjan samning Bruno Fernandes við Manchester United.

Romano hefur aldrei rangt fyrir sér í þessum efnum og segir hann portúgölsku stjörnuna hafa krotað undir fimm ára samning sem gildir til sumarsins 2027.

Fernandes kom sem stormsveipur inn í ensku úrvalsdeildina en hefur aðeins dalað á þessu tímabili og fengið sinn skerf af gagnrýni fyrir hluti eins og leti í varnarvinnu og neikvæða líkamstjáningu. Rauðu djöflarnir hafa þó tröllatrú á sínum manni og skal engan furða þar sem hann er metinn á um 100 milljónir punda.

Fernandes er 27 ára gamall og hefur skorað 49 mörk í 117 leikjum frá komu sinni til Manchester, auk þess að leggja upp önnur 39.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.