31.03.22 - 12:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fimmtán ára Íslendingur semur við OB (Staðfest)

Mynd: OB

Mynd: OB

Mynd: OB
Íslenski unglingalandsliðsmaðurinn Elvar Örn Petersen Guðmundsson hefur skrifað undir samning við OB sem gildir fram á sumarið 2025.
Elvar kom til OB fyrir nokkrum árum og byrjaði að spila með U11 ára liði félagsins. Í dag er hann fimmtán ára (2006) og hefur framherjinn skrifað undir í Óðinsvéum.
Elvar hefur spilað tvo leiki með U15 ára landsliðinu, vináttuleiki gegn Finnlandi síðasta haust. Á vefsíðu knattspyrnusambandsins er hann skráður í Breiðablik. Faðir hans er Guðmundur Örn Guðmundsson sem lék með Breiðabliki um aldamótin.

„Elvar er hæfileikaríkur leikmaður, hann passar vel inn í hópinn sem ein af 'níunum'. Hann er með mikla hæfileika með bakið í markið og þá er hann hraður og hávaxinn - yfir 190 cm," segir Tonny Hermansen, yfirmaður akademíunnar hjá OB.
„ann hefur alltaf skorað mörk, sama í hvaða liði hann hefur spilað. Við sjáum fram á að hann geti skorað fullt af mörkum fyrir okkur. Hann er á sínu fyrsta ári með U17 og hann hefur staðið sig vel þar," sagði Tonny.
„Þetta hefur alla þýðingu fyrir mig. Þetta hefur verið draumur frá því ég byrjaði að spila með OB, þetta er algjörlega óraunverulegt. Ég hef farið og horft á aðalliðið spila með pabba mínum frá því við komum fyrst til Danmerkur þegar ég var fimm ára. Þetta er sturlað að ég sé búinn að skrifa undir samning við félagið. Ég þekki þjálfarana, þeir þekkja mig og hvetja mig áfram. Ég legg enn meira á mig þegar ég finn fyrir pressu og reyni enn frekar að ná mínum markmiðum," sagði Elvar Örn. Hér að neðan má sjá myndband af Elvari frá árinu 2018.

Mynd: Guðmundur Örn