Fotbolti.net
31.03.22 - 17:38
Ívan Guðjón Baldursson

Glugginn opnar 10. júní (Staðfest)

Glugginn opnar 10. júní (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildin er búin að staðfesta dagsetningar fyrir félagaskiptaglugga sumarsins og fylgir þar fordæmi helstu deilda Evrópu.

Glugginn opnar snemma, eða 10. júní, og lokar klukkan 23:00 þann 1. september.

Það eru ýmis stór félagaskipti sem má vænta úr enska boltanum þar sem menn á borð við Erling Braut Haaland, Victor Osimhen og Paulo Dybala hafa verið orðaðir við flutning milli landa.

Þar að auki hefur úrvalsdeildin ákveðið að slaka á Covid skimunum og fjölga skiptingum úr þremur í fimm.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.