31.03.22 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Helga Guðrún í Fylki (Staðfest)

Helga Guðrún í leik með Stjörnunni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Helga Guðrún í leik með Stjörnunni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


<p>Helga Guðrún Kristinsdóttir hefur skrifað undir samning við Fylki og mun spila með liðinu í Lengjudeildinni í sumar.</p>
Helga kemur frá AO Trikala í Grikklandi en hún er að klára tímabilið þar og gengur í raðir Fylkis í byrjun maí.
Hún er uppalin í Grindavík en hefur einnig leikið með Stjörnunni. Hún hefur leikið 153 meistaraflokksleiki á ferlinum og skorað 36 mörk.
„Við Fylkismenn getum glaðst yfir þeim tíðindum að semja við leikmenn sem eru staðráðnir í því að hjálpa liðinu upp í deild þeirra bestu!" segir í tilkynningu Árbæjarliðsins.
