31.03.22 - 16:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Samningur Azpilicueta framlengdur (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Fyrirliði Chelsea, Cesar Azpilicueta, hefur framlengt samning sinn við félagið út næsta tímabil.
Azpilicueta (32 ára) er búinn að spila nægilega marga leiki á tímabilinu til að virkja ákvæði í samningnum sem sjálfkrafa framlengir hann um eitt ár. Spænski bakvörðurinn hefur komið við sögu í 35 leikjum á tímabilinu.

Samningur hans átti að renna út næsta sumar ásamt samningum þeirra Antonio Rudiger, Andreas Christensen og Charly Musonda.
Chelsea má þessa dagana ekki fara í neinar viðræður um nýja samninga vegna þeira hafta sem breska ríkisstjórnin hefur sett á Chelsea á meðan félagið er enn í eigu Roman Abramovich.
Barcelona hefur sýnt þeim Azpilicueta og Christensen áhuga og hefur verið greint frá því að Christensen hafi þegar gert munnlegt samkomulag við spænska félagið.
Ef Barcelona vill fá Azpilicueta verður félagið að borga fyrir hann. Talið er líklegt að við þessi tíðindi muni athygli Barca fara á Noussir Mazraoui, leikmann Ajax, sem félagið getur fengið á frjálsri sölu í sumar. Bayern Munchen hefur einnig áhuga á Mazraoui.