31.05.13 - 21:37
Daníel Freyr Jónsson
Falcao fer til Monaco (Staðfest)

Falcao.

Mynd: Getty Images

Falcao.

Mynd: Getty Images
AS Monaco hefur staðfest að félagið hafi náð samkomulagi við Atletico Madrid um kaup á framherjanum Radamel Falcao.
Falcao hefur einnig náð samkomulagi við Monaco og gengur hann í raðir félagsins í sumar á fimm ára samningi.
,,Við erum gjörsamlega í skýjunum með að Falcao hafi tekið áskoruninni í að spila fyrir Monaco. Við erum stoltir yfir að hafa eignast einn besta leikmann heims og við erum vissir um að hann muni hjálpa félaginu í að komast á þann stall sem það á að vera,\" sagði Dmitry Rybolovlev, eigandi félagsins, í tilkynningu nú í kvöld.
Falcao hefur verið einn skæðasti framherj heims undanfarin tímabil og hefur til að mynda skorað 52 mörk á þeim tveim tímabilum sem hann var hjá Atletico Madrid.
Hafði hann verið orðaður við öll af stærstu félögum Evrópu undanfarin misseri, en hinn rússneski Rybolovlev ætlar sér að dæla miklum fjárhæðum í Monaco og gera liðið að stórveldi í Evrópu.

Heimild: Heimasíða AS Monaco