Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 31. maí 2020 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sif Atladóttir velur draumaliðið sitt
Mynd: Draumaliðsdeild 50skills
Sif í landsleik í október.
Sif í landsleik í október.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sif Atladóttir, landsliðskona og leikmaður Kristianstad, hefur valið draumaliðið sitt í Draumaliðsdeild 50 skills. Pepsi Max-deild kvenna hefst eftir tólf daga svo það styttist óðfluga í upphafssparkið.

Smelltu hér til að taka þátt í Draumaliðsleik 50 Skills.

„Liðið mitt heitir Young Kids. Þetta lið er skipað næstu kynslóð Íslands.
Í markinu er klárlega herbergisfélaginn Cecelía, þarf varla að segja meira hvers vegna."

„Vörnin er uppsett af hraða og áræðni. Verður spennandi að sjá hvernig Jelena Tinna mun standa sig í efstu deildinni. Svo er ég með Barbáru, Guðný og Áslaug Mundu í byrjunarliðinu, Valdi svo Valgerði Ósk úr FH en þar sem það verður alveg svakalega erfiður leikur í fyrstu umferð á móti Breiðablik þá eru FHingarnir á bekknum í fyrstu umferð."

„Á miðjunni erum við með Hlín, Karólínu og Ídu sem fólk þekkir vel, en svo er ég með Álfhildi Rósu sem deildin á eftir að fá að kynnast betur. Fyrirliði Þróttar er skemmtilegur djúpur miðjumaður og á eftir að vera gaman að sjá hana berjast við bestu leikmenn landsins. Á bekknum verður Stefanía Ragnarsdóttir hjá Fylki en hún á eftir að koma inn við gott tækifæri."

„Sóknarmennirnir mínir eru Linda Líf, Sveindís og Birta Georgsdóttir. Allar hafa sett sitt mark á U-19 ára landsliðið okkar og verður gaman að sjá þær spila við okkar bestu konur í vörnum landsins."

„Ég hlakka mikið til að fylgjast með þessum ungu og efnilegu leikmönnum í sumar. Við eigum svo ótrúlega mikið af frábærum ungum leikmönnum og hlakka ég til að fylgjast með umfjöllun og leikjum sumarsins. Mynd af liðinu má sjá hér til hliðar,"
sagði Sif Atladóttir.

Smelltu hér til að taka þátt.

Sjá einnig:
Kristjana velur draumaliðið sitt
Sandra María velur draumaliðið sitt
Athugasemdir
banner
banner
banner