Fotbolti.net
31.05.22 - 19:15
Ívan Guðjón Baldursson

Saiss farinn frítt frá Wolves (Staðfest)

Saiss verður ekki með Úlfunum á næstu leiktíð.

Saiss verður ekki með Úlfunum á næstu leiktíð.

Canon

Mynd: Getty Images

Romain Saiss er búinn að staðfesta að hann yfirgefur Wolves á frjálsri sölu í sumar.

Hinn 32 ára gamli Saiss hefur verið hjá Wolves í sex ár og á þeim tíma spilað 206 leiki fyrir félagið. 

Saiss hefur verið meðal mikilvægari leikmanna Úlfanna undanfarin ár og spilaði 32 leiki á nýliðinni leiktíð.

Saiss er varnarmaður að upplagi en getur einnig spilað á miðjunni. Hann á 60 landsleiki að baki fyrir Marokkó.

..Stundin sem ég hef óttast er runnin upp. Ég þarf að kveðja ykkur eftir sex stórkostleg ár. Það hefur verið heiður og mikil forréttindi að klæðast þessari treyju og vera partur af góðri uppbyggingu innan félagsins," skrifaði Saiss á Instagram.

„Ég hef kynnst mögnuðu fólki á þessum sex árum. Takk Wolves, ég verð Úlfur að eilífu."


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.