Fotbolti.net
31.07.13 - 09:38
Magnús Már Einarsson

Danskur framherji og Guðmundur Þór í Val (Staðfest)

Guðmundur Þór Júlíusson.

Guðmundur Þór Júlíusson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur hefur fengið danska framherjann Patrick Pedersen til liðs við sig en þetta staðfesti Magnús Gylfason þjálfari liðsins við Fótbolta.net í dag.

Patrick lék síðast með Hjörring í heimalandinu en hann er fæddur árið 1991.
Fyrr í vikunni var greint frá því að Valur hefði samið við sóknarmanninn Lucas Ohlander frá Svíþjóð. Sá leikmaður getur spilað á kantinum og á miðjunni að sögn Magnúsar.

Valur hefur einnig fengið varnarmanninn Guðmund Þór Júlíusson á láni frá Fjölni út tímabilið. Guðmundur er fæddur árið 1993 en hann hefur leikið tvo leiki með Fjölni í 1. deildinni í sumar.

Nokkrar breytingar hafa orðið á leikmannahópi Vals í júlí en auk ofannefndra leikmanna þá kom Daniel Craig Racchi til félagsins.

Rúnar Már Sigurjónsson er hins vegar á leið til GIF Sundsvall í Svíþjóð auk þess sem Björgólfur Takefusa, James Hurst, Ingólfur Sigurðsson og Þórir Guðjónsson hurfu á braut.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.