31.07.13 - 13:00
Magnús Már Einarsson
Davíð Þór Viðarsson í FH (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Davíð Þór Viðarsson hefur gengið til lið við Íslandsmeistara FH á nýjan leik en hann fær leikheimild með liðinu á morgun. Davíð gerði samning við FH til ársins 2015.
Davíð Þór hefur leikið með Vejle í dönsku B-deildinni síðan í fyrra en þar áður lék hann með Öster í Svíþjóð frá 2010-2012.
Þessi 29 ára gamli miðjumaður var þar áður lykilmaður hjá uppeldisfélagi sínu FH en hann varð fimm sinnum Íslandsmeistari með félaginu á árunum 2004-2009.
Davíð gæti leikið með FH þegar liðið mætir ÍBV í Vestmannaeyjum á laugardag.
Samtals hefur Davíð skorað níu mörk í 137 deildar og bikarleikjum á ferli sínum með FH.