31.07.13 - 12:39
Magnús Már Einarsson
Spænskur sóknarmaður til ÍA (Staðfest)

Þorvaldur Örlygsson þjálfari ÍA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorvaldur Örlygsson þjálfari ÍA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA hefur fengið spænska framherjann Jorge Corella í sínar raðir en hann hefur gert samning út tímabilið.
Jorge er annar Spánverjinn sem kemur til ÍA í dag en áður hafði bakvörðurinn Hector Pena samið við félagið út tímabilið.
Jorge er fæddur árið 1984 en hann spilaði síðastliðinn vetur með Ontinyent í spænsku C-deildinni.

Auk Pena og Jorge hafa danski varnarmaðurinn Thomas Sörensen og kantmennirnir Joshua Watt og Hafþór Ægir Vilhjálmsson samið við ÍA í júlí. Þá framlengdi félagið lánssamning við sænska kantmanninn Joakim Wrele.
Skagamenn reikna ekki með að styrkja leikmannahóp sinn meira áður en félagaskiptaglugginn lokar á miðnætti.
,,Við höfum lokið okkar gríðarlega spennandi yfirferð yfir leikmannamarkað heimsins,\" sagði Þórður Guðjónsson framkvæmdastjóri ÍA í samtali við Fótbolta.net í dag.
,,Við náðum í einn á Íslandi sem við erum mjög ánægðir með, Hafþór Ægir. Hann á eftir að gefa okkur mikið það sem eftir er tímabils. Við styrktum okkur síðan varnar og sóknarlega á erlendum markaði.\"