Fotbolti.net
31.07.13 - 17:24
Daníel Freyr Jónsson

Steven Caulker til Cardiff fyrir metfé (Staðfest)

Steven Caulker.

Steven Caulker.

Canon

Mynd: Heimasíða Cardiff

Varnarmaðurinn Steven Caulker er genginn í raðir Cardiff og skrifaði hann undir fjögurra ára samning hjá nýliðunum í ensku úrvalsdeildinni.

Caulker kemur frá Tottenham og er talið að Cardiff hafi greitt um 9 milljónir fyrir hann. Hann er því dýrasti leikmaðurinn í sögu félagsins.
Hinn 21 árs gamli Caulker kom upp í gegnum unglingastarf Tottenham og skrifaði hann undir sinn fyrsta atvinnumannasamning árið 2009. Hann hefur síðan þá leikið með Yeovil og Bristol sem lánsmaður.

Þá var hann einnig á láni hjá Swansea á þarsíðustu leiktíð og vakti þar talsverða athygli með frammistöðu sinni.

Frammistaða hans með Tottenham á síðustu leiktíð var það góð að hann var kallaður í enska landsliðið og lék sinn fyrsta landsleik í nóvember á síðasta ári.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.