31.07.13 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Þorvaldur Sveinbjörnsson og Rafnar Smárason í Völsung (Staðfest)

Þorvaldur Sveinbjörnsson í leik með FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorvaldur Sveinbjörnsson í leik með FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Völsungur sem leikur í fyrstu deild karla hefur fengið liðsstyrk fyrir átökin í seinni hluta deildarinnar, en Þorvaldur Sveinbjörnsson er kominn frá FH.
Þorvaldur, sem er fæddur árið 1994, fór 14 ára gamall í FH, en hann er uppalinn á Húsavík og lék upp yngri flokka með liði Völsungs.
Hann hefur spilað með 2. flokk FH síðustu ár, en hann hefur spilað nokkra æfingaleiki með meistaraflokknum einnig. Hann er nú kominn aftur á Húsavík og ætlar að hjálpa liðinu að næla sér í stig í fyrstu deildinni.
Ragnar Smárason er þá einnig kominn til félagsins, en hann er einnig fæddur árið 1994 og er uppalinn á Húsavík. Hann hefur undanfarin tvö ár spilað með Þór á Akureyri, en er kominn aftur á Húsavík. Hann á að baki 16 leiki fyrir Völsung og hefur hann skoraði 4 mörk í þeim.