Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 31. júlí 2020 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Níutíu prósent líkur á að Özil fari 2021
Özil er ekki á förum frá Arsenal í sumar.
Özil er ekki á förum frá Arsenal í sumar.
Mynd: Getty Images
Umboðsmaður Mesut Özil segir að það séu 90 prósent líkur á því að hann yfirgefi Arsenal á næsta ári. Hann útilokar að Özil verði á ferðinni í sumar.

Özil var út í kuldanum hjá Unai Emery í byrjun tímabils og hefur ekki spilað í síðustu leikjum undir stjórn Mikel Arteta. Þjóðverjinn, sem er á himinháum launum, þykir ekki eiga mikla framtíð hjá Lundúnafélaginu. Talið er að Arteta sé ekki ánægður með viðhorf Özil.

Samningur hins 31 árs gamla Özil við Arsenal rennur út á næsta ári og gert er ráð fyrir því að hann fari þá frá félaginu.

„Það eru 90 prósent líkur á því að hann fari frá Arsenal 2021. Mesut til Asíu, Ameríku eða Tyrklands? Já, kannski," sagði Erkut Sogut, umboðsmaður Özil, við Fanatik í Tyrklandi.
Athugasemdir
banner
banner