Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 31. júlí 2021 21:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Man City með öruggan sigur á Barnsley - „Eigum enn langt í land"
Mynd: EPA
Manchester City mætti Barnsley í æfingarleik í kvöld. Leiknum lauk með öruggum 4-0 sigri City.

Staðan var orðin 3-0 eftir rúmlega hálftíma leik. Mahrez skoraði í öðrum leik sínum í röð og lagði upp annað mark. Samuel Edozie og Benjamin Knight skoruðu sitt markið hvor.

Nathan Ake kom City í 4-0 á 68. mínútu og þar við sat. Pep Guardiola sagði í viðtali eftir leikinn að liðið ætti enn langt í land en City mætir Leicester í Góðgerðarskyldinum um næstu helgi.

„Við eigum enn langt í land. Það er eðlilegt að það sé nóg til að bæta. Við æfum á morgun og spilum gegn Blackpool á þriðjudaginn svo undirbúum við okkur fyrir Góðgerðarskjöldinn."
Athugasemdir
banner
banner