Fotbolti.net
21.07.26 - 12:17
Elvar Geir Magnússon

Hvaða lönd hefðu verið á HM með 64 liðum?

Gianni Infantino og Donald Trump með bikarinn góða.

Gianni Infantino og Donald Trump með bikarinn góða.

Canon

Mynd: EPA

Hávær umræða hefur verið um að stækka HM upp í 64 lið og Gianni Infantino, forseti FIFA, ýjað sterklega að því að það gæti verið gert.

Riðlakeppni með 48 liðum þykir ekki hentug tala og myndi einfalda ýmislegt að vera með 64 liða riðlakeppni þar sem tvö efstu lið hvers riðils kæmust í 32-liða úrslit. Stækkun á mótinu upp í 64 lið myndi lengja mótið um fimm daga.

Ef nýafstaðið heimsmeistaramót hefði innihaldið 64 lið, hvaða lönd hefðu þá bæst við inn í mótið? Skoðum það til gamans (staða á heimslista innan sviga).
FIFA skoðar 64 liða HM - „Það verður rætt eftir mótið“
TENGT EFNI

FIFA skoðar 64 liða HM - „Það verður rætt eftir mótið“

Asía: Indónesia (118), Óman (79), Sameinuðu arabísku furstadæmin (68).

Evrópa: Danmörk (21), Ítalía (12), Pólland (36).

Concacaf: Hondúras (65), Jamaíka (71), Súrinam (125).

Conmebol: Bólivía (77), Venesúela (49).

Eyjaálfa: Nýja-Kaledónía (151).

Afríka: Búrkína Fasó (62), Kamerún (44), Gabon (86), Nígería (26).

Sú umræða að Evrópa ætti að fá fleiri sæti hlutfallslega fékk byr undir báða vængi eftir HM þar sem lið frá asíska sambandinu og Conmebol voru ekki að ríða feitum hesti frá mótinu.
Ítalía hefði komist á HM.

Ítalía hefði komist á HM.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.