31.08.20 - 18:50
Brynjar Ingi Erluson
Henrikh Mkhitaryan til Roma (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Armenski landsliðsmaðurinn Henrikh Mkhitaryan er genginn í raðir Roma á Ítalíu en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í kvöld.
Mkhitaryan er 31 árs gamall og var á láni hjá Roma frá Arsenal á síðustu leiktíð en hann skoraði 9 mörk og lagði upp 5 í 22 leikjum í Seríu A.
Samningur hans við Arsenal átti að renna út næsta sumar en leikmaðurinn komst að samkomulagi við félagið um að rifta samningnum.
Hann kemur því á frjálsri sölu til Roma en hann var að þéna 180 þúsund pund á viku hjá Arsenal.
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, sá engin not fyrir Mkhitaryan sem skoraði níu mörk í 58 leikjum frá því hann kom frá Manchester United í skiptum fyrir Alexis Sanchez í janúar árið 2018.

Thank you, @HenrikhMkh
— Arsenal (@Arsenal) August 31, 2020
And good luck with @ASRomaEN 👊