Fotbolti.net
31.08.20 - 20:15
Brynjar Ingi Erluson

Herra Fjölnir í Vængi Júpíters (Staðfest)

Gunnar Már Guðmundsson er mættur í 3. deildina

Gunnar Már Guðmundsson er mættur í 3. deildina

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Már Guðmundsson, fyrrum fyrirliði Fjölnis, er kominn með félagaskipti yfir í Vængi Júpíters í 3. deildinni.
Gunnar Már eða Herra Fjölnir eins og hann hefur oft verið kallaður, lagði skóna á hilluna árið 2017 og fór að einbeita sér að þjálfaraferlinum en hann er yfirþjálfari yngri flokka Fjölnis og aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla.

Hann hóf ferilinn sinn hjá Fjölni í 3. deildinni árið 2001 og tókst að fara með liðið upp í efstu deild á átta árum. Hann spilaði einnig með FH, Þór og ÍBV áður en hann ákvað að fara aftur heim í Fjölni og klára ferilinn þar.

Gunnar er búinn að fá félagaskipti úr Fjölni yfir í Vængi Júpíters og er því með leikheimild með liðinu í 3. deildinni.

Það verður fróðlegt að sjá hvort hann spreyti sig með liðinu í sumar en Vængirnir eru með 15 stig í 6. sæti deildarinnar þegar tæpur helmingur er eftir af mótinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.