Fotbolti.net
31.08.20 - 11:03
Magnús Már Einarsson

Ívan Óli Santos í HK (Staðfest) - Aftur í ÍR á láni

Ívan Óli Santos í HK (Staðfest) - Aftur í ÍR á láni
Canon

Mynd: Jóhanna Kristín Hauksdóttir

HK hefur fengið sóknarmanninn unga Ívan Óla Santos í sínar raðir frá ÍR.

Ívan Óli er 17 ára gamall en hann hefur leikið átta leiki með ÍR í 2. deildinni í sumar.
Samtals hefur Ívan Óli skorað fjögur mörk í 24 leikjum í 2. deildinni á ferli sínum.

Ívan Óli hefur skorað eitt mark í þremur leikjum með U16 ára landsliðinu.

Uppfært 12:37: Ívan Óli mun klára tímabilið með ÍR en hann verður á láni hjá félaginu til mótsloka.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.