31.08.20 - 15:03
Magnús Már Einarsson
Orri Hrafn í Fylki (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir hefur fengið miðjumanninn Orra Hrafn Kjartansson aftur í sínar raðir frá Heerenveen í Hollandi. Orri skrifaði undir samning við Fylki til ársins 2023.
Orri Hrafn spilaði í yngri flokkum Fylkis en árið 2018 keypti Heerenveen hann í sínar raðir.
Hinn 18 ára gamli Orri hefur spilað í yngri liðum Heerenveen síðan þá en núna hefur hann gengið til liðs við Fylki á nýjan leik.
Orri hefur skorað þrjú mörk í 21 leik með U16, U17, U18 og U19 ára landsliði Íslands.
„Heimkoma Orra Hrafns er okkur mikið ánægjuefni enda afar hæfileikaríkur leikmaður á ferðinni með hugarfar sem ungir iðkendur félagsins geta tekið sér til fyrirmyndar," segir á Facebook síðu Fylkis,
„Orri Hrafn hefur æfingar að lokinni 5 daga ferðasóttkví og ætti því að verða tiltækur í næsta leik okkar manna, þann 13. september, gegn öflugu KA liði á Akureyri."
Draumaliðsdeild Eyjabita
Orri er mættur í Draumaliðsdeild Eyjabita. Kemst hann í þitt lið?

Velkominn heim til @FylkirFC Orri Hrafn ⚽️⚽️⚽️ pic.twitter.com/BkKMupSjE8
— Hrafnkell Helgi Helgason (@HHelgason7) August 31, 2020