Fotbolti.net
31.08.20 - 19:07
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Zlatan framlengir við Milan til 2021 (Staðfest)

Zlatan Ibrahimovic verður áfram í Mílanó

Zlatan Ibrahimovic verður áfram í Mílanó

Canon

Mynd: Getty Images

Sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic framlengdi í dag samning sinn við ítalska félagið AC Milan en samningurinn gildir út júní á næsta ári.
Zlatan er 38 ára gamall en það virðist þó ekki sjást á honum. Hann ákvað að fara aftur til Milan í janúar eftir að hafa spilað með Los Angeles Galaxy í MLS-deildinni í Bandaríkjunum síðustu tvö árin.

Hann hjálpaði Milan að komast í Evrópudeildina með því að skora 11 mörk í 20 leikjum.

Milan liðið gerði afar vel eftir áramót og ákvað félagið því að framlengja við hann út næsta tímabil.

Zlatan var í treyju númer 21 á síðustu leiktíð en hann færir sig yfir í 11.

Svíinn öflugi hefur leikið með mörgum af stærstu félögum heims en þar má nefna Ajax, Juventus, Inter, Barcelona, Paris Saint-Germain og Manchester United

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.