Fotbolti.net
31.08.21 - 16:36
Elvar Geir Magnússon

Arsenal lánar Reiss Nelson til Feyenoord (Staðfest)

Arsenal lánar Reiss Nelson til Feyenoord (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sóknarmiðjumaðurinn Reiss Nelson hefur gengið í raðir hollenska félagsins Feyenoord á lánssamningi frá Arsenal.

Þessi 21 árs leikmaður hefur spilað 48 aðalliðsleiki síðan hann spilaði sinn fyrsta leik sautján ára gamall.

Tímabilið 2018/19 lék hann á lánssamningi fyrir Hoffenheim í Þýskalandi.

Lánssamningurinn við Feyenoord gildir út tímabilið og á heimasíðu Arsenal er honum óskað velfarnaðar hjá nýju félagi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.