Fotbolti.net
31.08.21 - 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Benfica fær Lazaro frá Inter (Staðfest)

Benfica fær Lazaro frá Inter (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Benfica hefur fengið Valentino Lazaro frá Inter. Lazaro er austurrískur landsliðsmaður sem hefur verið á mála hjá Inter í tvö ár.

Í janúar í fyrra var hann lánaður til Newcastle og á síðasta tímabili var hann hjá Mönchengladbach.

Hann hefur einungis spilað sex deildarleiki með Inter frá komu sinni.
Hann fer á láni til Benfica út þessa leiktíð.

Lazaro er 25 ára kantmaður sem er samningsbundinn Inter fram á sumarið 2024.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.