Fotbolti.net
31.08.22 - 10:30
Elvar Geir Magnússon

Úlfarnir klófesta Kalajdzic (Staðfest)

 Sasa Kalajdzic er mættur til Wolves.

Sasa Kalajdzic er mættur til Wolves.

Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Wolverhampton Wanderers hefur keypt austurríska sóknarmanninn Sasa Kalajdzic frá Stuttgart á 15,5 milljónir punda.

Þessi 25 ára leikmaður hefur skrifað undir fimm ára samning með möguleika á einu ári til viðbótar.

Hinn hávaxni Kalajdzic mun berjast við Raul Jimenez, sem hefur verið að glíma við meiðsli, um byrjunarliðssæti. Hwang Hee-chan er einnig á mála hjá Úlfunum en þykir ekki rétta tegundin af sóknarmanni til að leysa Jimenez nógu vel af hólmi.
„Ég er afskaplega þakklátur og ánægður með að vera hérna. Þetta var félagið sem vildi mest af öllum fá mig," segir Kalajdzic sem hefur leikið fimmtán landsleiki fyrir Austurríki.

„Á mínum aldri er mikilvægt að finna hvaða skref er næst og ég tel að Wolverhampton sé besta skrefið fyrir mína framþróun. Ég átti gott spjall við þjálfarana og hitti nokkar leikmenn. Allir tóku gríðarlega vel á móti mér."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.