Fotbolti.net
31.10.13 - 16:46
Magnús Már Einarsson

Guðmann Þórisson til Mjallby (Staðfest)

Guðmann Þórisson til Mjallby (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðmann Þórisson, varnarmaður FH, hefur gengið til liðs við sænska félagið Mjallby en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net nú rétt í þessu.

Guðmann skrifaði undir tveggja ára samning við Mjallby í dag en hann hefur verið á reynslu hjá liðinu að undanförnu.
,,Nýtt ævintýri framundan! Kveð besta klúbb á Íslandi,\" skrifaði Guðmann á Instagram.

Þessi 26 ára gamli leikmaður hefur verið einn besti miðvörður Pepsi-deildarinnar undanfarin tvö tímabil, eftir að hann sneri aftur heim frá Noregi þar sem hann lék með Nybergsund.

Mjallby er í tíunda sæti í sænsku úrvalsdeildinni fyrir lokaumferðina sem fer fram um helgina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.