31.10.13 - 15:53
Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Már Guðmundsson í Fjölni (Staðfest)

Gunnar Már fer í Fjölnisbúninginn að nýju.

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Fjölnir hefur gengið frá samningum við Gunnar Már Guðmundsson um að ganga aftur til liðs við félagið. Gunnar Már sem spilaði með ÍBV, FH og Þór undanfarin ár hefur jafnan gengið undir viðurnefninu Herra Fjölnir og hann er að snúa aftur til síns uppeldisfélags.
Gunnar Már skrifaði undir þriggja ára samning við félagið en Fjölnir leikur í Pepsi-deildinni á næsta ári eftir að hafa unnið 1. deildina í sumar.
Gunnar Már yfirgaf Fjölni árið 2009 þegar liðið féll í 1. deildina. Hann gekk þá til liðs við FH þar sem hann spilaði 2010. FH lánaði hann svo til Þórs árið á eftir og undanfarin tvö ár var hann hjá ÍBV.
,,Það varð mikil eftirsjá af Gunna Má þegar Fjölnir féll árið 2009 eftir tvö ár á meðal þeirra bestu og Gunni gekk til liðs við FH. Til að gera langa sögu stutta, þá er Fjölnir komið að nýjan leik á meðal þeirra bestu og var það aldrei spurning að hugurinn leitaði heim,\" segir í tilkynningu Fjölnis.
Gunnar Már hefur spilað 101 leik í efstu deild og skoraði í þeim 22 mörk. Hjá Fjölni mun hann einnig koma að þjálfun hjá klúbbnum, hann mun þjálfa 4. flokk karla sem og taka að sér sérverkefni sem koma að afreksstefnu félagsins.